Við erum tveir forritarar, Jakob Stefán Ívarsson og Sævar Breki Snorrasson, og Revolv er verkefni sem við byggjum með eitt markmið í huga: að gera endursölu einfaldari og öruggari fyrir alla. Á Revolv geturðu sett inn sölu á snyrtilegan hátt, fylgst með stöðunni, séð aðrar sölur og tengst markaðnum á skýran og þægilegan hátt.
Þú getur líka óskað eftir vörum, tengt óskir við það sem er í boði og haft allt á einum stað í stað þess að leita um allt og missa utan um samskipti, framvindu og yfirsýn.
Við leggjum mikla áherslu á traust og þægindi. Markmiðið er að viðskipti séu skýr, ferlið einfalt og upplifunin þannig að bæði seljendur og kaupendur finni að þetta sé vettvangur sem er hannaður til að virka.