Hjálp og upplýsingar
Hér er heildaryfirlit yfir ferlið eins og það virkar í dag: greiðslur, pöntunarstaða, persónuleg afhending, tímamörk, ágreiningar og stuðningur.
Flýtileiðir
Hér er grunnflæðið frá því að vara er valin þar til pöntun er komin af stað.
Pöntun byrjar þegar þú ferð í checkout á vöru og greiðslan fer í gegn. Þá opnast pöntun með skýrri stöðu í pantanakerfinu.
Kaup teljast staðfest þegar greiðslugátt skilar staðfestingu. Þá opnast spjall milli kaupanda og seljanda og pöntunin færist í næsta skref.
Karfan getur innihaldið margar vörur, en núna keyrir escrow checkout eina vöru í einu í gegnum pöntunarferlið.
Ef greiðsluferli klárast ekki innan frátektarglugga losnar frátekt á vörunni aftur sjálfvirkt og hún verður sýnileg öðrum.
Samskipti og afhending fara fram inni í pöntun með persónulegri afhendingu (pickup).
Spjall opnast eftir staðfesta greiðslu. Það er notað til að semja um afhendingu og halda utan um ferlið.
Kerfið krefst þess að seljandi sendi að minnsta kosti eitt skilaboð áður en pöntun er staðfest eða sett í afhendingu.
Kaupandi og seljandi semja um stað og tíma í spjalli. Seljandi setur svo pöntun í pickup og afhending fer fram í eigin persónu.
Seljandi býr til 6 stafa pickup-kóða. Kaupandi staðfestir kóðann fyrst og seljandi staðfestir svo sama kóða.
Spjall lokast strax ef pöntun er felld niður eða endurgreidd. Í afgreiddum pöntunum lokast það að jafnaði um 24 klst eftir afhendingu/lokun.
Upplýsingar um gjöld, heildarverð og hvenær uppgjör gerist.
Buyer protection fee er verndargjald sem leggst ofan á vöruverð í checkout. Það er reiknað sem 5% með lágmarki 590 kr.
Í körfu og checkout sérðu sundurliðun: vöruverð, verndargjald og heildarupphæð áður en gengið er frá greiðslu.
Í pickup klárast pöntun þegar bæði kaupandi og seljandi hafa staðfest sama afhendingarkóða í pöntuninni.
Ekki sem sér lína fyrir sendingu, þar sem ferlið er núna byggt á persónulegri afhendingu (pickup).
Kerfið notar tímamörk til að halda flæðinu gangandi og vernda báða aðila.
Seljandi hefur almennt 36 klst til að bregðast við. Ef það gerist ekki getur pöntun verið felld niður sjálfvirkt með endurgreiðslu.
Afhendingargluggi er að jafnaði 72 klst eftir að pöntun fer í skipulag/afhendingu. Kaupandi getur óskað eftir framlengingu þegar það á við.
Ef pickup dregst of lengi (allt að 72 klst í óvirkni) fer pöntun í stuðningsskoðun í stað sjálfvirkrar lokunar.
Í pickup klárast pöntun þegar báðir aðilar hafa staðfest sama afhendingarkóða.
Ef eitthvað fer úrskeiðis er hægt að setja pöntun í ágreining og fá aðstoð.
Kaupandi getur opnað ágreining á virkum stigum pöntunar, til dæmis ef vara stemmir ekki við lýsingu eða afhending bregst.
Pöntun fer í stuðningsferli, merkingar á pöntun uppfærast og stuðningur fær yfirlit yfir atvik áður en ákvörðun er tekin.
Já. Þú getur tilkynnt notendur og auglýsingar innan kerfisins svo teymið geti farið yfir málið.
Best er að fara í sambandssíðuna og senda skýra lýsingu með pöntunarnúmeri, svo við getum brugðist hraðar við.
Farið er yfir öll skrefin á ferlisíðunni með tímalínu og skýringum fyrir kaupanda og seljanda.
Sendu okkur skilaboð með pöntunarnúmeri og stuttri lýsingu á stöðu, þá getum við farið beint í málið.